Madame Blueberry

Madame Blueberry

25.04.2008 23:04:08 / Madame Blueberry

Hætt hér... kíkið á þetta...

Já, er alveg búin að fá nóg af þessu liði hér...!!! Er komin með nýtt blogg. Endilega kíkið þangað ;)
http://johannast.blog.is/blog/johannast/
Ætla að vera flott eins og hinir og vera á moggablogginu ;)

» 0 hafa sagt sína skoðun

02.04.2008 12:18:15 / Madame Blueberry

Bögg

Algjört bögg!!! Fyrst breyta þeir öllu hérna á blogCentral og rugla röðinni á öllum tenglunum mínum... og núna kann ég ekkert að laga þetta!! Þetta gerir alveg útslagið með þetta BlogCentral dæmi og ég ætla klárlega að færa mig e-rt annað þegar ég byrja að blogga aftur. Þangaðtil verðið þið bara að nota tenglana í ruglaðri röð!!!

» 0 hafa sagt sína skoðun

29.01.2008 15:01:17 / Madame Blueberry

Pása...

Þessi síða hefur verið sett í tímabundna pásu í bili!! Ætla að reyna að nota þann aukatíma sem ég hef í tölvustúss, til að gera síðu bræðranna fína og halda henni við!!

Kveðja... Madame "tveggjastrákamamma"


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.01.2008 23:40:51 / Madame Blueberry

Gleðilegt Nýtt ár!!

Já, ég verð bara að þakka honum Hreiðari fyrir skemmtilega afmælisgjöf!!!

http://visir.is/article/20080102/FRETTIR01/101020185

Og gleðilegt nýtt ár allirsaman!!

Meira seinna!!


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.12.2007 10:06:56 / Madame Blueberry

Gleðileg Jól allirsaman!!

Já, Gleðileg Jól allir lesendur nær og fjær!!Við erum sko búin að hafa það rosa gott yfir jólin, borða góðan mat og slappa af... allavega smá! Svo eru jólaboðin búin að setja sitt mark á þetta alltsaman, en við höfum bara þurft að afboða okkur í eitt boð og það var vegna þess að við vorum í öðru boði... Brjálað að gera í jólaboðamætingum!! T.d. bíða okkar tvö boð í dag og bæði svona um miðjan daginn, svo við mætum í eitt snemma til að komast seint í hitt. ...Eins gott að vera skipulagður!!

Annars fengum við fullt af pökkum og alveg merkilegt hvað voru margir pakkar undir tréinu og í kringum það, þarsem við vorum bara þrjú... tvö fullorðin og eitt barn!! Samt gaman að því hvað Kúturinn sýndi þessum pökkum lítinn áhuga. Honum fannst ekki einu sinni skrjáfupappírinn eða pakkaböndin spennandi og jólatréið með öllum sínum 150 ljósum og jólakúlum hefur alveg fengið frið... tja, þangað til í gærkvöldi allavega. Dáldið fyndið að ég rétti Kútnum pakka á aðfangadagsmorgun, voða vel skreyttan í svona pappír sem heyrist í.... Hsnn tók þetta, skoðaði aðeins, kleip aðeins í hann og smakkaði hann svo... En afþví það var ekkert bragð af þessu, þá bara lét hann pakkann sömu leið og annað óspennandi... beint í gólfið aftur!! (með tilheyrandi "datt" yfirlýsingum!!) ...og þarmeð var það  afgreitt... Jólapakkar eru ekki spennandi!!! Vonandi sð hsnn læri þetta bara fyrir næstu jól... hehe!!

En já, takk fyrir okkur, jólagjafir og jólakort. Hafið það sem best það sem eftir lifir hátíðarinnar.

Gleðileg Jól!!!


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.12.2007 12:14:56 / Madame Blueberry

Myndir

Fyrir þá sem hafa áhuga á að vita... þá eru komnar nýjar myndir á síðuna hjá litla Kútnum mínum. Endilega kíkið og verið svo dugleg að skrifa í gestabókina hans líka!! (já, það má skrifa OFT!!!)

Er annars að fara í útskrift í dag. Er ekkert smá stolt af manninum mínum sem var að klára sveinsprófið sitt. Verst bara að þurfa að klæða sig upp og fara svo útí þetta skítaveður sem er búið að hertaka þennan klaka sem við búum á!!!

anyways... meira seinna ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.12.2007 07:58:10 / Madame Blueberry

úfffffff...

Klukkan er ekki orðin átta á sunnudagsmorgni og hér sit ég fyrir framan tölvuna!!! Hjá mér situr sá sem vaknaði klukkan hálf sex í morgun og hefur ekkert viljað sofa síðan þá. Hann vaknaði reyndar líka klukkan hálf-fjögur, en mér tókst að svæfa hann aftur þá.... 8| Það besta er... hann var ekki sofnaður fyrr en eftir miðnætti, svo nú megið þið reikna hversu mikinn svefn við erum búin að fá þessa nóttina!!(ég er of þreytt til að reikna...)
Algjört bögg að hann skuli vera að vakna svona. ÉG meina... þetta barn heldur bara að maður komist í gegnum lífið án þess að missa af neinu, þmt þegar maður ætti að vera sofandi. Ég veit alveg að það er smá rugl á rútínunni sem var ágæt (þó hann færi alltaf seint að sofa þá líka) en það ruglaðist allt með USA ferð og svo hellings veikindum í kjölfarið!! Núna heldur hann uppteknum hætti á daginn með því að sofa ekki lengur en 30-45 mín í hvert skipti og hann vill líka gera það þegar hann sofnar á kvöldin, þeas, vakna eftir stuttan blund og vaka svo frameftir öllu. Við höfum reynt ýmislegt til að svæfa hann aftur, en nei, litli þverhausinn ætlar ekki að sofa og þá fer hann ekki að sofa!!!!!! Þetta getur gert mann alveg brjál.....:$ Ætlum að reyna allt sem við höfum heyrt og lesið og séð, til þess að reyna að koma upp betri rútínu sem inniheldur að barnið fari að sofa FYRR á kvöldin (ég sætti mig alveg við níu-leytð miðað við ástandið í dag....) og sofi á næturnar!!

Nú er hann t.d. orðin MJÖG pirraður og leiðinlegur, vælir bara og kvartar... Ætli hann sé ekki að segja að það henti honum að sofna núna aftur og þá á mamman bara að þóknast því?????????????   En jæja, ég er svosem alveg til í að leggja mig aftur, enda ekki búin að sofa mikið og trúið mér... ófrískar konur verða bara að fá sinn nætursvefn, það er bara þannig!!!

Be back later...

og ef þið vitið um gott lesefni um svefn ungabarna, þá please segið frá!!!!!


» 1 hafa sagt sína skoðun

29.11.2007 08:49:55 / Madame Blueberry

vitlaus dagsetning

Hvað er málið með dagsetninguna á síðustu færslu... um það að ég sé lélegasti bloggarinn??? Hún er allavega skrifuð í dag, 29.11.07 milli hálf níu og níu um morgun!!! Skil ekki alveg sum tölvukerfi, en anywho... þá er það á hreinu!!

» 0 hafa sagt sína skoðun

12.10.2007 17:26:30 / Madame Blueberry

Lélegasti bloggari í heimi....

Hehe... held ég sé lelegasti bloggari landsins um þessar mundir... Hef akkurat engan tíma í þetta nema kannski eins og núna, klukkan hálfníu á fimmtudagsmorgni. Strákurinn sefur og kallinn er farin út. Ég ákvað hinsvegar að fara á fætur og nota tímann í e-ð skemmtilegt meðan ég fæ frið frá litlum takkaóðum lasarusi.

Það hefur margt og mikið gerst síðan ég bloggaði síðast en ætli sé ekki best að telja bara upp aðalatriðin...?? Ég og fjölskyldan mín skruppum til Minneapolis í nokkra daga. Tilgangurinn var að versla og versla og versla meira. Allt gékk rosa vel og Fannar Smári hagaði sér voða vel í ferðinni. Hann fékk voða mikla athygli frá okkur og öllum öðrum, enda rosa sjarmakríli á ferð. Svo eftir að við komum heim þá var farið í sumarbústað yfir helgi og Fannar var lasin eiginlega allan tímann. Hann fékk reyndar fyrstu tönnina til að byrja með en veiktist svo og var með mikinn hita og kvef. Hann er einmitt ennþá veikur í dag en er nú vonandi á batavegi.

Ég er líka komin í straff!!! Nú á konan bara að taka því rólega og ekki reyna neitt á sig!!!!! ...Já, þið haldið að það sé ekkert mál, en ÓNEI, ekki þegar maður á lítinn 8 mánaða stuðbolta, sem er lasin en þarf annars mikla athygli. Þetta er allt vegna of mikilla samdráttarverkja í bumbunni og það er víst ekki gott....!!!  Ég er nú samt mjög heppin því ég á svo góða mömmu og tengdamömmu og fleiri sem geta aðstoðað aðeins. Veit ekki hvar ég væri án þeirra. Svo á ég notlega besta mann í heimi sem hugsar voða vel um mig og litla krílið okkar, svo við erum í góðum málum. Allar heimsóknir eru samt vel þegnar núna í des og jan, því ég kem ekki til með að þvælast mikið ein, því að ég má ekki halda mikið á barninu mínu nema í neyð og þessvegna dáldið erfitt að þvælast mikið ofanaf þriðju hæð og út með hann. Ætla nú samt ekki að loka mig alveg inni og ætla alveg að fara og skoða jólin á öllum helstu stöðunum, en verð lítið á óþörfu ferðalagi ;) ....svo núna er bara málið að koma í heimsókn. Ég ætla meiraðsegja að vera dugleg og reyna að baka smákökur til að eiga e-ð gott með kaffinu handa þeim sem nenna að klifra alla leið uppá þriðju til mín ;)

En jæja... nú styttist í að strákurinn vakni... svo ég held ég reyni að nota tímann aðeins betur og fara í sturtu meðan allt er hljótt í íbúðinni. ég skal svo reyna að láta ekki líða svona langt á milli næst... en ætli myndirnar á síðuna hjá kútnum séu ekki næstar í röðinni??? Mér finnst það!!!

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.10.2007 10:14:03 / Madame Blueberry

Dugnaður!!

Já, ég var ýkt dugleg í gær, þó ég segi sjálf frá!!! Tók til hérna í litlu íbúðinni okkar (svona aðeins allavega), skúraði alltsaman og skúraði meiraðsegja sameignina niðri, en það var okkar vika núna. Dreif svo manninn minn með mér í smá meiri tiltekt og hann ryksugaði svo stigana frammi (hluti af sameignarþrifunum). Svo afþví við vorum svo dugleg, þá bakaði ég þessa fínu súkkulaðiköku handa okkur á meðan Jóhann eldaði þessar rosa fínu kjúklingabringur með grænmeti handa okkur. (sem var btw ROSA gott!!) ...Svo var ég líka alveg uppgefin í gærkvöldi og sofnaði með strákinn í fanginu, en ég var að gefa honum pela og hann sofnaði og þá bara lagði ég mig líka.... Voða huggulegt ;)

EN já... for your information, þá á ég ekkert smá flottan nýjan bíl!! Dodge Grand Caravan, Rauður, 2006 árgerð, með rafmagni í öllu, þmt hliðarhurðunum, svo þetta er alveg eins og lítill "minibuss" eða strumpastrætó eins og margir kalla þessar drossíur. Nóg pláss fyrir okkur öll og tilvonandi fjölgun í fjölskyldunni... ásamt því að þá fylgir meira dót, t.d. stór vagn og annar bílstóll!!! ...En samt, nóg pláss ennþá fyrir farþega, ef e-r vill koma með í bíltúr.
Ætla að smella inn mynd af bílnum þegar ég er búin að taka eina... Hef ekki komist í það ennþá, er of upptekin í prufukeyrslunni ;)

Fannar er bara stór.... og verður stærri með hverjum deginum. Hef ekki undan að pakka niður "of litlum" fötum á hann, sem pössuðu á hann bara í síðustu eða þarsíðustu viku. Hann er greinilega í e-rjum vaxtakipp núna. Hann verður líka 7 mánaða í næstu viku, og þá eru bara ca 3 mán og 10 dagar í að hann verði formlega orðin stóribróðir!! ...Spennandi. ;)

Well... Vantar tillögur af góðum "út að borða" stað, svona í sambærilegum flokki og "potturinn og pannan"!! Tillögur óskast sem fyrst... Þarf að fara að leyfa einni af uppáhaldsfrænkunum að leika við Fannar í eitt kvöld og skreppa sjálf með kallinn út að borða ;) ....er þaggi góð hugmynd?? 


» 6 hafa sagt sína skoðun

23.09.2007 17:23:39 / Madame Blueberry

Sunnudagur

Jæja!!! Þá er afrek dagsins búið... rúmlega 60 nýjar myndir á síðunni hans litla Kúts og smá ritvinnsla líka. Er reyndar líka búin að fá gesti... 3 stóra, einn millistærð og einn ferfættann... Hjálpa Jóhanni með súkkulaðikökuna sem okkur langaði að baka og fara í Bónus með kall og barn og keyra yfirvigtarþungan vagninn heim, meðan kallinn bar restina í tveimur svínapokum! Frekar gott miðað við að það er Sunnudagur í dag!!!


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.09.2007 11:32:20 / Madame Blueberry

Húrra fyrir Eddu

Húrra fyrir Eddu að hafa fundið mig... Nokkuð gott hjá henni ;) Velti fyrir mér hverjir fleiri hafa fundið síðuna og þora ekki að segja mér af því.. hehe ;)

Stutt blogg núna... kannski lengra næst ;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.09.2007 14:39:05 / Madame Blueberry

Við eigum afmæli!!

Jább, Við eigum afmæli í dag. Heil 2 ár liðin... og 9 mánaða trúlofun að baki ;) ...og búin að búa í Hraunbænum í 15 mánuði ;)

Nokkuð gott... er þaggi??


» 4 hafa sagt sína skoðun

04.09.2007 18:11:38 / Madame Blueberry

Hahaha!

Hehe, það virðist sem Tinna systir sé sú eina sem hafi húmor.... tja, fyrir mér allavega!! Tinna er líka æði.. það er bara staðreynd ;)

Er annars að elda Bayonneskinku og á svo von á tengdó í mat í kvöld. Eins gott að þetta heppnist nú ágætlega, maður getur alltaf lagt sig fram um að heilla þetta fólk, og svo hef ég notlega litla sjarmakrílið með mér, sem fer létt með að heilla ömmu sína og afa uppúr skónum og rúmlega það.

Keypti mér burðarpoka áðan til að nota fyrir kríli 1 núna og kríli 2 þegar það fæðist. Þarf bara að læra á hann og nota hann aðeins til að venjast. Allir sem kunna á Hotslings pokana mega koma með góð ráð ;)

Er búin að vera dugleg og skúra allt í dag, þrífa aðeins og fara út og eyða mörgum peningum í allskonar skemmtilegt, eins og bónus og apótekið! Hei, já, og ef ykkur vantar gos-töflur til að laga brjóstsviða, þá mæli ég með þessum sem fást í Bónus (samarin) á ca 350 kall, en ekki þessum sem fást í apótekinu (manekkihvaðþærheita) sem kosta 4.500 kall!!! og já, það er meira í bónuspakkanum heldur en hinum, bara svona til að bæta þetta aðeins upp!!! ...useless information, en ég hefði alveg verið til í að vita þetta áður en ég fór í apótekið, það hefði sparað mér seinni ferðina þangað til að skila rándýru töflunum!! Velti fyrir mér.. ætli hafi verið GULL í þeim líka??? Eða allavega SILFUR??? Hvað útskýrir svona verðlag eiginlega???

Anywho, strákurinn vaknaður og óður í takkana... got to go!!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.08.2007 17:34:34 / Madame Blueberry

ehh...

Nei, annars... ég nenni ekki að skrifa neitt núna!! Er hætt við... Be back later ;)

» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 13
Klukkan
Kútur og Snúður eiga þessa síðu!